föstudagur, mars 24, 2006

Jæja, ég skal alveg taka það á mig hérna að ég er ekki búinn að vera duglegur að blogga upp á síðkastið. Ég er ekki búinn að gefa mér tíma til þess. Tíminn er búinn að fara mikið í það að skíða á milli þess sem ég er búinn að vera í svitaköstum heima yfir því að ég sé að ná mér í einhvern lífshættulegan sjúkdóm. Stundum þá get ég verið alveg milljón og það að vera kominn nokkur þúsund km burt frá klakanum breytir engu. Ég skal sko segja ykkur það. Krónísk eyrnabólga, heilahimnubólga og járnskortur er meðal annars það sem ég sjálfgreindi mig. En listinn er lengri, það skal ég segja ykkur. Svo kom bara í ljós að ég var með alltof mikinn eyrnamerg! Ekki hvarflaði það að mér, nei, mér fannst það líklegra að ég væri með heilahimnubólgu. Það þurfti smá móðurlega umhyggju eins og ég vill kalla það til að koma vitinu fyrir mig. Þegar ég var alveg í öngum mínum yfir þessu öllu saman, þá sagði mamma blákalt, að ef ég væri með lífshættulegan sjúkdóm að þá væri ég hvort eð er líklegast dauður eða þá fyrir löngu kominn á spítala. Sem er náttúrulega alveg rétt en þegar maður leyfir ímyndunar aflinu að taka tauminn þá er raunin oft þessi, að minnsta kosti hjá mér. Nei, svona er maður nú klikkaður.

En þrátt fyrir þetta allt þá eftir síðasta blogg þá var gert það sem stóð til. Þá viku fór ég 4 sinnum á skíði og sveiflaði mér eins og ég ætti lífið að leysa. Þannig að framfarirnar eru orðnar þó nokkrar. Annars er veðrið orðið þannig að skíðatímabilið er nú farið að styttast all mikið í annan endan. Hérna í Grenoble er farinn að vera 15°C hiti á daginn sem þýðir að snjórinn er fljótur að taka upp. En það má nú njóta snjósins lengur, en það jaðrar við það að maður þyrfti að fá sér sjóskíði. Annars komu telemarkskíðin vel út úr slappinu því þau fljóta mjög vel, eins og ég kann að hafa sagt áður.

Já, núna er líka allt upp í loft með skólana hérna. Eins og fólk kann að vita þá er mikil mótmæli gangi hérna. Ekki það að mér finnst þetta nú hálf fyndið, þar sem að mótmælin fara að mestu þannig fram að nemendur loka sumum deildum í háskólaunum. Þetta verður svo til þess að allt fer í rugl og núna byrjað að tala um það fólk þurfi að endurtaka þetta ár á næsta ári. Ég er ekki alveg nógu vel inni í þessu til þess að ég geta dæmt þetta af einhverri alvöru. En mér finnst þetta samt allt hið sérkennilegasta og ekki bætir úr skák þegar farið er að mótmæla mótmælunum. En þetta snertir mig samt ekki því að einhverja hluta vegna þá er deildinni ekki lokað hver svo sem ástæðan fyrir því er. Kannski eru jarðfræðinemar ekki svona pólitískir í Frakklandi eða þá að mótmælendurinir nenna ekki að labba upp til þess að loka skólanum hjá mér. Hver svo sem ástæðan er þá finnst mér þetta allt hið furðulegasta.

Í síðustu viku var síðan GRÍS fundur heima hjá Ásdísi. Ég tók það að mér að elda fyrir allt liðið og eldaði ég marókóskan mat. Ég verð nú bara að segja, þó þetta sé ég, að þá var maturinn rosalega góður. Stemmingin var líka eins og alltaf góð þó að ég verð að segja að sumar umræðurnar voru þess eðlis að ég átti erfitt með taka mátt. Ég meina stígvél og kjólar eru ekki mín sterkasta hlið.

Allavega ég ætla að hætta núna, gera eitthvað uppbyggilegt.

A+
Guðni

5 Comments:

At 24 mars, 2006 15:04, Anonymous Nafnlaus said...

"Guðni, farðu út í apóthek, keypti þér nefdropa og snýttu þér." :p
Smá heilræði frá Birkiberginu...

Þín einlæga systir,
Eydís Ýr

 
At 24 mars, 2006 17:37, Anonymous Nafnlaus said...

HAhahha, þú ert alveg milljón, gott að þetta var bara eirnamergur að hrjá þig.

Kv.
Svanhildur

 
At 26 mars, 2006 18:23, Anonymous Nafnlaus said...

;) gott að lækning fannst. Mæli með lestri tímaritanna Hendes verden og Burda, fyrir næstu GRÍS samkomu. þetta er náttúrulega svakaleg kvennaveröld þarna hjá þér núna. kveðjur í vorið
Mundi

 
At 30 mars, 2006 11:32, Anonymous Nafnlaus said...

Tihihi, greyid Gudni ad vera einn med milljon konum... En hann stod sig allavega svakalega vel i eldhusinu ;)

Gott ad komid er i ljos hvad var ad hrja thig og enn betra ad thad var ekkert alvarlegt...

Ciao!
Asdis

 
At 30 mars, 2006 15:01, Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu ég hélt að þú værir sannkallaður metrokarlmaður... en svo hefur þú ekki vit á stígvélum og sliku, HALLÓ

 

Skrifa ummæli

<< Home