Ég er farinn að hafa svolitlar áhyggjur af mér, ég verð bara að segja það. Standarinn hjá manni er gjörsamlega að fara til andskotans. Ég er búinn að hafa það að á stefnuskránni að finna lyftingar sal sem hérna á garðinum hjá mér í langan tíma. Ég hef gert 3 tilraunir til þess að finna hann, en allt fyrir ekki það fann ég hann bara ekki. Síðan á mánudaginn tókst mér loks að finna hann. Sem sagt kannski svona 15fm herbergi með eini niðurtogstæki, einu hjóli, litlu róðradóti og 2 bekkpressubekkjum. Þetta er fínt, það er ekki það, heldur þegar ég sá þetta sagði ég við sjálfan mig:"Þetta er bara rosalega flott, miklu betra en ég reiknaði með". Það er nokkuð slæmt þegar væntingarnar á hluti í Frakklandi eru orðnar lægri en veruleikinn er því að standardinn er nú alveg nógu lítill. Það er aldrei að vita nema að pabbi þurfi að skipta um klósett heima og setja eina svona holu eða alvega að taka setuna því að því er maður orðinn vanur. Nei, það held ég nú ekki.
Ég sé það að ég hefði kannski átt að taka mér aðeins lengri tíma í það að reyna að stafa nafnið mitt í síman þegar ég pantaði íbúðina í Les 2 Alpes. Allavega fékk ég nafnið mitt sem: Gethi Raosenkgaear. Það er kannski bara ágætt að heita svona rosalega sérstöku nafni að það er það sérstakt að virðist skipta litlu máli hvenig það er stafset að samt radar bréfið í réttar hendur. Sem sagt, ég fékk bréfið og allt er í góðum málum. Við fáum íbúðina og allt á að vera frágengið. Þetta tókst mér og það allt á frönsku. Ég bara nokkuð ánægður með sjálfan mig, verð nú bara að segja. Maður lærir alltaf eitthvað.
Í gær átti að draga mig á skauta af nokkrum hokkýóðum kanadískum vinum mínum. Ég hef aldrei skautað svo að hægt sé að tala um þannig að ég var búinn undir verki og marbletti í dag. En þegar við komum í höllina var svellið upptekið því það var hokkýæfing í gangi. Við það urðu allir upprifnir og eiginlega fór allir í trans. Það var ekkert annað rætt en hokký það sem eftir lifði kvöldsins. Ég var nú aðeins út úr umræðunum því að allt sem ég veit um hokký er Happy Gilmore og hún er nú meira um golf heldur en hokký. Ég vissi allavega að maður má ekki taka af sér skautan og reyna að stinga einhvern. En eftir allar þessar umræður náði ég nú að sanka að mér smá vitneskju um hokký og verð nú að segja að þetta er nú nokkuð magnað sport.
Ég iða nú samt alveg í skininu núna. Ég er að fara að hitta Anders núna á laugardaginn og vera með honum á skíðum í nokkra daga. Það verður nú fjör. Þar er frekar maganað er danir og skíði fara bara rosalega vel saman þrátt fyrir að Danmörk nánast flat. Spennan er það mikil að í kvöld er meiningin að pússa og laga skíðin mín með Felix og fleirum og á meðan verður horft á einhvern rosalega skíðamyndband sem Felix er búinn að downloada. Ekki dónalegur undirbúningur fyrir skíðaferðina.
Ég ætla að hætta núna og fara undirbúa mig fyrir kvöldið.
Salut
Guðni

1 Comments:
Guðni og hokkí..hehehe :D góður. :P
Þú verður að draga mig á hokkíæfingu þegar ég kem út sem er tja.. bara eftir viku!! :):)
Hlakka til að sjá þig og bið HJARTANLEGA vel að heilsa honum Andersi stórvini okkar.
Eydís Ýr
Skrifa ummæli
<< Home