Jæja, nú er komið að því að halda uppteknum hætti. Það er um að gera fyrst ég loksins hafði mig í þá að finna mér nýtt blogg að ég nota það nú og skrifi með reglulegu millibili. En af fyrri reynslu reikna ég með að blogga reglalegu svo lengi sem bloggið líkar við mig og leyfir mér að blogga. Nóg af bitri MSN space reynslu. MSN ekki mitt uppáhald þessa dagana.
Jæja, nú er maður að detta í gírinn, fór bæði á skíði á þriðjudags eftirmiðdag og svo allan fimmtudaginn. Fór með Simoni og fleiri Þjóðverjum á þriðjudaginn en fór með Munda í gær. Það var ekkert smá magnað því að skýhulan var svo lágt að í 600m var maður kominn upp úr skýjunum og þar fyrr ofan var allgjört bongó. Ég fór báða dagana til Chamrousse sem er eitt af "litlu" skíðasvæðinum í grend við Grenoble, 30 mín keyrsla frá Grenoble. Ég verð að segja að svæðið kom skemmtilega á óvart. Nokkuð stórt, skemmtilegar brekkur þarna og kósí umhverfi. Maður á ábyggilega eftir að fara svoldið þanngað. Ég tók skíðin mín og vaxaði þau, sem var án efa löngu tímabært og síðan hjálpaði Mundi mér að skerpa kantana þannig að mér leið eins og ég væri á glæ nýjum skíðum. Ég er síðan að fara núna um helgina með Integre, sem er samtök sem skipuleggja viðburði fyrir erlendu skiptinemana, í skála þar sem verður hægt að skíða og svo er meiningin að hafa skemmta sér á laugardagskvöldið. Ekki slæmt, finnst ykkur nokkuð? Þetta á eftir að vera fjör, vona ég allavega.
Ég er svo líka á fullu að skipuleggja skíðaferðir. Ég ætla að fara að hitta Anders í Avoriaz þar sem hann verður á skíðum ásamt skólafélögum sínum í viku 5. Ég ætla að fara og hitta hann þar og skíða aðeins með honum. Keypti lestarmiða í dag, þannig að nú er það alveg klárt að ég er að fara. Gekk nú frekar brösulega að kaupa miðan en það er önnur og kannski ekki eins áhugaverð saga. Já, svo er pabbi og Dísa systir að koma til mín 4 feb., þar sem meiningin með þeirri ferð er furðulegt nokk líka að fara á skíði. Ég er núna í því að skrifa tölvupósta og spurjast fyrir um íbúðir fyrir okkur að vera í. Það verður nú ekkert smá flott hjá mér að geta slegið um mig með frönskunni og leitt þau um sannleikan hvað varðar Frakkland og franska menningu. Vá, ég er nú alveg að yfirgefa jörðina með þessum háfleygu skrifum mínum, en ég vona að því fyrirgefið mér það, ég er bara allur í skýjunum yfir þessum viðburðum.
Hvað er fleira að gerast merkilegt? Jú, Mundi og Svanhildur eru að snúa tilbaka á Klakan. Þau fara núna um helgina þannig að annað kvöld ætlar GRÍS (GRenoble-ÍSland samtökin) að fara út að borða til að kveðja þau. Það verður skrítið þegar þau verða farin, því ég er nánast orðinn eins og heimalingur hjá þeim. Þau hafa verið rosalega notaleg við mig og verð ég að viðurkenna það hér og nú að ég barasta eftir að sakna þeirra töluvert. En verða að taka við nýir tímar og það kemur maður í manns stað. Ég verð nú að segja að það á eftir að vera skrítið að fara ekki reglulega í Carrefour með Munda og missa okkur saman í alíslensku neyslubrjálæði. Eða fara endurtekið í Decathlon að skoða gefa álit á hinum ýmsustu útivistavörum. Eða þá að fá að njóta hinar endalausu gestrisni sem ríkir heima hjá þeim. Þeim báðum hefur tekist að leiða mig inn í mikinn og góðan sannleika sem ég hefði nú sennilega farið á mis við annars. En ég kem til með að hitta þau aftur, þau búa nú í Reykjavík þannig að þegar ég verð kominn heim verð ég sennilega tíður gestur hjá þeim þar, bara þannig að þið verið tilbúin undir það þegar þar að kemur.
Jæja, ég held bara að ég sé búinn að létta nóg af mér í þetta skiptið.
A plus
Guðni

5 Comments:
Við eigum líka eftir að sakna þín Guðni minn og þú ert alltaf velkominn til okkar í heimsókn. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður kynnist fólki eins og þér svo það er alveg á hreinu að við munum bíða spennt eftir að fá þig heim á klakann. Svo er nú aldrei að vita bena við flytjum bara á Hringbrautina í Hafnarfirði og verðum bara nágrannar :-)
Gleymdi að kvitta.
Svanhildur.
það er rétt sem spúsan segir. heiðurinn hefur ekki síður verið okkar - nú veit maður að það heimurinn elur einn snilling til viðbótar sem maður vissi ekki af. Bíð spenntur eftir því að kíkja í Fjarðarkaup með þér... .hhahaha...
gangi þér vel
Gaman að heyra frá þér karlinn minn. Ég var að spá í að hringja um helgina en bíð með það fram á mánudag.
Kveðja, Mamma
Hey, Guðni. Bara til að leiðrétta GÓÐAN misskilning en þá komum við pabbi 3.febrúar til þín. ;)
Bara svona hafa þetta alveg á hreinu.
En hafður það gott.
Eydís Ýr
Skrifa ummæli
<< Home