sunnudagur, janúar 08, 2006

Jæja, núna er það tilraun 2 til þess að halda úti smá bloggi á netinu. Þetta leiðindar MSN blog virkar bara ekki þannig að þá ætla ég að skrifa hérna blogger.com. Það er semsagt viðbúið að ég komi til með að skrifa reglulega hérna, svo framalega sem þessi síða bilar ekki líka. Mig langar að setja inn myndir fyrir ykkur líka, en það virkaði illa hjá mér inni á þessari síðu, þannig að ef einhver veit um góða síðu þar sem maður getur set inn myndir þá þætti mér vænt um að sá hinn sami léti mig vita.

Annars er ég rosalega góður. Kannski svona eins og flestir vita þá var ég heima um jólin. Ég tókst að hitta marga en það er eins alltaf þegar maður er upptekin við að borða og gera ekki neit, þá er erfitt að koma öllu öðru inn í prógramið. Það var gaman að koma heim, hafa það huggulegt í faðmi fjölskyldunnar og þess háttar. Maður var ekki hlunfarinn af veðrinu, þar sem það var snjór eða rigning til skiptis svo gott sem allan tíman. Það var líka gaman að komast í matinn hjá mömmu og ekki síst gaman að geta eldað í alvöru eldhúsi. Það var líka brjáluð hamingja heima, því að Spice var á lóðarí og Vinur hugsaði með tippinu allan tíman. Margt annað rak á fjörur mínar meðan ég var á klakanum eins og alltaf en það er of langt að segja frá því öllu hérna.

En nú er ég semsagt kominn aftur til Grenoble til þess að taka seinni önnina. Ég hlakka til, nú er maður kominn inn allt miklu betur og sér betur hvað þarf að gera til að láta hlutina ganga betur upp. Fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að meina, þá er ég að réttalæta fyrir mér að vera eiginlega bara á skíðum núna í vor. Allt í lagi, ég ætla kannski bara að vera á skíðum, heldur langar mig að hjóla svolið líka, ferðast aðeins um Frakkland og nærliggjandi lönd og svo á ég líka heimboð á nokkuð marga staði sem gaman væri að fara til. Þannig að ég er nú bara að þyrla ryki í augun á sjálfum mér þannig að ég fari ekki á bömmer yfir því að vera ekki að læra eins og heima. Maður á ekki að hugsa svona, en gerir það nú bara samt.

Núna er svoldið af fólkinu sem ég umgekkst hvað mest fyrir áramót annað hvort farið eða að fara. Það er svoldið skrítið, en svona er nú bara lífið. Það kemur maður í manns stað enda er maður ekkert á flæðiskeri staddur. Vá, ég er alveg að gera útaf við sjálfan mig með þessum háfleygu skrifum. Það mætti halda að ég væri þunnur. Það var að vísu þannig í gær að ég var nú bara veikur vegna þynnku. Á föstudagskvöldið var mér boðið í mat hjá Munda og Svanhildi sem endaði með því að við spiluðum og ég og Mundi byrjuðum klára hinar ýmsustu flöskur. Það var nú bara botnfyllir í þeim öllum en drukkum á meðal annars Gajol snafs, Gammel Dansk og eitthvað meira. Heilsan morgun eftir var eftir þessu og í raun fram að kvöldmat. Man þetta næst.

Ég ætla að fara að fá mér að borða núna. Ég skrifa fljótlega aftur.
Salut
Guðni

3 Comments:

At 08 janúar, 2006 13:16, Blogger vignir freyr said...

hæhæ guðni.. til hamingju með nýtt blogg og takk fyrir hittinginn á íslandi ;) spurning um að gera brunchboð að árlegum viðburði?

en já, fyrir myndir nota ég photos.yahoo.com mjög einfalt og fljótlegt ;)

kv. vignir

 
At 08 janúar, 2006 13:42, Anonymous Nafnlaus said...

jeeeee ga-jol :)

 
At 08 janúar, 2006 16:56, Anonymous Nafnlaus said...

Vertu duglegur að blogga. :)

Eydís, Vinur og Spice.
P.s. hlakka til að sjá þig eftir TÆPAR fjórar vikur. :D Við tökum á því þá. :P

 

Skrifa ummæli

<< Home