Ég sit inni í herbergi og er að hlusta á gamla slagara í löngum bunum. Hver man ekki eftir No milk today með Herman Hermits? Eða Hang on sloppy með The McCoys? Ég veit ekki alveg hvar ég fækk þessa tónlist, en kan sá hinum sama bestu þakkir fyrir. Ekki skemmir heldur að aftir að ég varð stoltur iPod eigandi núna um jólin og er farinn að nota iTunes til að spila tónlist í tölvunni, þá er hægt að flokka lögin í iTunes eftir gerð þannig að ég get látið tölvuna sjálfa raða upp smellinum til að hafa ofan af fyrir mér. Þetta er alveg magnað.
Ferðin núna um helgina var bara ágæt. Það var rosalega flott að komast burt frá Grenoble og komast aðeins til fjalla. Ég verð að alveg að taka ofan fyrir Frökkunum sem eru í forsvari fyrir Intgre samtökunum. Þau kunna alveg að skipuleggja fínar skemmtanir. Ekki það að þeir sem ég fór með voru nú ekki upp á sitt besta. Við vorum fjögur saman í herbergi, einn var með matareitrun og einni tókst að slasa sig á snjóbretti um daginn þannig að herbergisstemmingin var lítil sem ekki nein. Enda vorum við sorglegi hópurinn sem situr úti í horni og hefur lítil samskipti við aðra. Ég verð að segja mér til málsbóta þá dansaði ég svoldið, flestir þarna voru alveg sót ölvaðir en mér tókst bara ekki að ná þeim hæðum þetta kvöld. Ég endaði líka með því að fara frekar snemma í rúmið sem var líka bara fínt. Það verður djamm eftir þetta djamm, það er nú víst alveg öruggt og það eru næg tækifæri til þess að verða drukkinn og gera einhverja vitleysu. Ég hef engar áhyggjur af því. Svo í gær fór ég á skíði og það skiptir nú engu, það er bara alltaf gaman að fara á skíði, punktur. Umhverfið þarna í kring var líka alveg magnað og rosalega góð tilbreyting frá meingunar metuðu landslaginu í kringum Grenoble. Helgin var því sigur, alveg hvernig sem á það er litið.
Á föstudagskvöldið fórum við á La Panse, sem útlegst á íslensku sem vombin. Kannski ekki mest aðlagandi nafnið norðan Alpa en maturinn þarna var hreint út sagt magnaður. Ég skil núna afhverju Mundi og Svanhildur hæla staðunum svona mikið. Ostrur í forrétt, akurhæna í aðalrétt og síðan Crème brulée í eftirrétt er nú ekki matseðill sem er á hverju veitingar stað. Og kannski það allra magnaðasta við þetta er að máltíðin með víni kostaði aðeins 35€ á mann, sem eru um 2500 íslenskar krónur. Þetta var alveg magnað og var kvöldið heild sinni hið besta. Það var gaman að fara svona með öllum og kveðja Munda og Svanhildi. En þetta var eiginlega tvöfaldur kveðjukvöldverður því að það kemur til með fækka enn meira hérna í Grenoble. Eiríkur og Helga eru búin að ákveða að fara heim og fara núna í vikunni. Þeirra allra verður saknað en það er nú víst að það kemur maður í manns stað eða hérna er það meira að það koma í vinkonur í stað pars. Það er að koma eða eru nú þegar komnar 4 íslenskar stelpur þannig að GRÍS samtökin munu nú halda velli en þó breytri mynd. Ég verð bara að fá að vera væminn og segja að ég á heldur betur eftir að sakna þeirra fjögra sem eru að fara núna því þetta eru allt orðnir vinir mínir og ég er strax farinn að hlakka til að hitta þau heima á klakanum.
Núna er komið að því að ég fari að ljúka þessu bloggi og snúi mér að öðrum verkum.
Þar til næst.
Salut
Guðni

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home