fimmtudagur, janúar 19, 2006

Það er skrítið hvernig hlutirnir koma aftan að manni. Ég vissi alveg að fullt af fólki sem ég er búinn að kynnast kæmu ekki aftur eftir jól en samt sem áður kemur það mér alltaf jafn mikið á óvart þegar það er ekki hérna. Það var Rabot partý í gær og það var fullt af fólki en mér fannst samt vanta fullt af fólki sem var venjulega alltaf. Holllendingarnir sem ég umgegst töluvert eru allir farnir heim og þar mun sérstaklega um hana Marjolijn sem bjó fyrir ofan mig og ég var vanur að bjóða í mat og umgangast töluvert mikið. Ætli ég sé ekki bara að segja að ég sakni vinanna sem voru hérna áður en þýðir nú bara það að maður þarf að eignast nýja vini. Ég á samt eftir að sakna allra hinna.

Já, ég er kannski svoldið á tilfinningalegum nótum núna en það helgast af því að ég létt verða að því að gera mjög tilfinningaríkan hlut í dag. Ég fór í fyrsta skiptið í Carrefour án Munda í næstum 3 mánuði. Ég verð bara að segja það að var svoldið einmannalegt. Ég fór á hjólinu en Mundi ekki hafa neinar áhyggjur, ég hélt hinu íslenska neyslubrjálæði vel á lofti. Ég var nú mjög pláss meðvitaður enda kom ég öllu með glans í hjólatöskurnar. En það eftirgjöfin í neyslunni var engin, og þá meina ég engin. Smokkfiskur og sjávarfang, vín, foie gras og þar frameftir. Hér eftir er ekki hægt að slakka neit á.

Í gær var partýið á Rabot. Það var Jan, líka þekktur sem MistaJ, sem var að plötusnúðast. Hann er einn af Þjóðverjunum sem ég umgengst töluvert hérna. Það má sko með sanni segja að hann kann sko alveg að þeyta skífum enda var staðurinn líka alveg troðfullur, ekkert minna. Hann hélt uppi góðu fjöri sem enda eins og reglur gera ráð fyrir kl 1, þegar allt rafmagn fer af húsinu. Fram að þeim tíma var fjörið gott enda tilhvers er maður hérna ef maður getur ekki djammað?

Núna um helgina er stefnan set á að fara aðeins á skíði, annars er ég aðeins að spara mig. Ég er nú að fara til Avoriaz, til að hitta Anders, um aðra helgi og þá verður skíðað og án efa líka aðeins djammað á danska vísu. Síðan helgina eftir það koma pabbi og Dísa, og til að leiðrétta smá misskilning þá koma þau 3. febrúar en ekki 4. febrúar eins og áður hefur komið fram á blogginu hjá mér. Við ætlum að fara saman til Les 2 Alpes þar sem vel hægt er að skíða. Ég er búinn að panta íbúð og ég veit ekki betur en að allt sé í góðu með það. Það tók að vísu svoldið langan tíma að stafa nafnið mitt fyrir konuna en ég held að það hafi tekist að lokum.

Jæja, ég ætla að klippa þetta í þetta skiptið.
A +
Guðni

2 Comments:

At 20 janúar, 2006 10:15, Anonymous Nafnlaus said...

Já þetta með að stafa nöfnin sín í síma er ekki það auðveldasta. Vona að þetta hafi gengið betur hjá þér en þegar ég var að stafa GUDMUNDUR og svo fengum við bréf sem á stóð VEDMUNDUR!

Kveðja,
Svanhildur

 
At 24 janúar, 2006 10:25, Blogger vignir freyr said...

ég hef líka fengid allskonar útgáfur af nafninu mínu, thad fyndnasta var eflaust vetgner thegar ég pantadi dominos pitsu hér um árid, vegner er líka algeng útgáfa og eflaust ekki verra ad bera thad nafn (hans j. wegner var jú feiknagódur hønnudur :)

en já, gaman ad thessu.. hafdu thad gott gudni minn í útlandinu, ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera.. eda jú, kannski ættirdu bara ad gera thad? :)

kvedja frá køben,

vignir.

 

Skrifa ummæli

<< Home