Ég ætla að nota tækifærið að biðjast afsökunar á síðustu skrifum mínum. Það var bara nauðsynlegt fyrir mig að fá aðeins að ausa úr skálum gremju minnar því að ég var frekar ósáttur. En það er nú ekki hægt að svekja sig á svona einhverju of lengi. Maður er jú einu sinni í Frakklandi og svona virðast hlutirnir svoldið vera bara hérna. Allavega er það reynasla mín frá þessu ferðalagi mínu.
Eins og lesa má í fyrra bloggi þá fór ég á sunnudagsmorguninn áleiðis til Cluses með lest og furðulegt nokk miðað við daginn áður þá var lestin á réttum tíma og lestarferðin gekk nokkuð vel fyrir sig. EN, þegar ég kom til Cluses og ætlaði að fara að taka rútuna upp til Avoriaz þar sem ég ætlaði að fara á skíði þá tók hið yndislega skipulag Frakklands vel á móti manni. Ég í heimsku minni hélt bara að það væri best að fara til Cluses og þar mundi ég finna út úr því hvernig rútan virkaði. En nei, það er allt lokað á sunnudögum þannig að ég stóð á rútu/lestarstöðinni í Cluses og vissi ekkert um það hvenær eða yfirhöfuð hvort ég kæmist upp til Avoriaz þennan dag, en þess má geta að ég var kominn til Cluses kl. 9.10. Ég spurðist fyrir um rútuna en það var litlar upplýsingar að fá. Ég hitti síðan nokkra franska krakka sem voru í sömu sporum og ég sem gaf mér sáluró. En það endaði með því að ég tók rútu klukkan 14.45 og var kominn upp til Avoriaz um 16.00. Þannig að það tók mig næstum 11 tíma að komast á leiðarenda sem mér finnst nú svoldið mikið.
Ég skal alveg viðurkenna það að ég var þreyttur og pirraður á þessu öllu, en um leið og ég hitti Anders þá fór það fyrir lítið. Ég var með Anders og tveimur af hans bestu vinum í herbergi. Og það var rosalega gaman. Þeir reytu af sér skemmtileg heitinn þannig að það hálfa hafði verið miklu meira en nóg. Síðan voru þeir duglegir í því að espa hvorn annan upp í allskonar vitleysu þar sem oftar enn ekki fylgdi miklar kúk og piss umræður. Ég fékk alveg allt beint í æð sem var alveg frábært. Síðan til að lífga enn meira upp á húmorinn hjá mér eftir vonbrigði með ferðalegið, þá fann einn af vinum Andersar gildan skíðapassa fyrir svæðið á gólfinu meðan að við vorum á djamma á sunnudagskvöldið, þannig að ég þufti ekki að kaupa mér skíðapassa. Þannig að ferðin varð þannig ennþá sættari. En það var svo gaman að djamma svoldið með Dönum, það er bara svo allt allt allt allt öðruvísi og þá meina ég það á góða vegu. Þó svo að ferðinn hefði verið aðeins styttri og ferðalagið flóknara en ég hafði reiknað með, þá var þetta alveg þess virði og ég hafði farið þó aðeins um dag hefði verið að ræða.
Jæja, svo er það bara næsta skíðaferð sem tekur við. Að þessu sinni er það pabbi og Dísa systir sem ætla að koma. Það verður fjör líka enda jafnast nú fátt við það að vera á skíðum það verður nú bara alveg að viðurkennast hér og nú. Svo verður nú líka gaman að fá þau í heimsókn og þó svo að þau stoppi nú ekkert rosalega lengi þá eru það ekki lengdin heldur gæðin sem skipta máli.
Ég ætla ekki hafa þetta mikið lengra því að á morgundagurinn verður frekar strangur. Á morgun á að reyna að framkalla kraftaverk í herberginu mínu þannig að ég komi gestunum mínum fyrir í herberginu. Það á að taka á honum stóra sínum og það verður hver einasti fermillimetri nýttur í fyrir eitthvað.
Þannig að þar til næst
Au revoir
Guðni

1 Comments:
Eins gott fyrir þig að þú takir vel til. :p Sætti mig ekki við hvað sem er, nei djók. ;)
En hey, við bara SJÁUMST á morgun :)
Blessó :)
Skrifa ummæli
<< Home