Ég ætla ekki að skrifa mikið núna, en ég verð bara að segja að vægast sagt hata lestar. Okei, þær er góðar til síns brúgs en ég var ekki sáttur með lestarnar í dag. Eins og áður hefur komið fram ætlaði ég að vera kominn til Avoriaz núna á skíði með Anders en nei allt kom fyrir ekki í dag.
Þegar ég mætti á lestar stöðina var mikið fólki þar inni sem er frekar óvanalegt en hvað veit ég. Ég fann sporið mitt og svo þegar lestin kom ekki var tilkynnt að seinkun væri á lestinni, 1tími og 30mín. Allt í lagi, ég fer inn á lestar stöðina og bíð eins og allir hinir. Eftir góðan klukkutíma inni í stöðinni er tilkynnt að lestin sem ég ætlaði að taka sé að koma en hún fari ekki alla leið heldur stoppi á næstu stöð á undan. Ekki alveg það sem ég vildi heyra. En það var ekki öll von úti, það var önnur lest sem átti að koma fljótlega, en það var þó einhver seinkun. En svo var tilkynnt að lestinni seinkaði enn meira og þá sá ég fram á að komast ekki alla leið á skíða staðinn í kvöld, því að ég hafði ekki náð í rútuna fyrir síðasta spöllinn. Þá ákvað ég eftir að búinn að vera í um það bil 3 klukkutíma að bíða á lestarstöðinni að draga mig í hlé á meðan ég var með smá forskot, það er að segja að taka lest snemma í fyrrimálið þegar kerfið er vonandi komið í lag heldur en að vera í von eða óvon einhversstaðar á miðri leið. Þannig að núna er ég búinn að vera í Grenoble í staðinn fyrir að vera kominn til Avoriaz og vera að fara á skíði á morgun.
Ég get ekki sagt að ég sé sáttur og það er líka eins gott að þetta gangi betur á morgun heldur en í dag. Reynsla dagsins í dag á lestunum er ekki alveg að gera sig.
Ég ætla að fara að sofa núna því ég þarf að vakna snemma í fyrramálið til þess að ná lestinni. Þannig að þar til næst.
Salut
Guðni

1 Comments:
Oj fúlt!
Ég vona að allt hafi gengið vel hjá þér á sunnudaginn og að þú sért núna í skíðabrekkunum!
Kv. Svanhildur.
Skrifa ummæli
<< Home