Eins og lofað var í síðasta bloggi ætla ég gefa smá skýrslu um skíðaferðina á laugardaginn síðasta. En fyrst vil ég bara segja í síðasta blogginu mínu var ég alveg ekki að meika það. Ég hef aldrei upplyfðað það svona sterkt áður en fúkalyfin sem ég var á voru alveg að gera útaf við mig, alveg sama hvernig á það er litið. Föstudagurinn var ein allsherjar tilfinningarúsibani, ég held að það hafi ekki skipt neinu máli hvaða tilfinning það var að ég fækk hana þarna. Ekki að þetta skipti ykkur einhverju máli en mér finnst bara við hæfi að deila þessu með ykkur.
En vindum okkur sem snöggvast að skíðaferðinni. Ég vaknði snemma og fór niður á rútustöðina eldsnemma um morguninn eins lög gera ráð fyrir. Ef svolitlar vangaveltur var ákveðið frekar að fara til Chamrousse heldur en Les 2 Alpes þar sem að það snjóaði mikið og að 1 og hálfstíma rútuferð var ekkert rosalega spennandi. Þannig að farið var til Chamrousse, sem að mínu mati gefur Les 2 Alpes lítið eftir hvað var skíðamennsku. Þegar komið var á staðinn var töluverð ofankoma og þoka yfir svæðinu og lyfturnar ekki enn opnaðar vegna þess að það var verið að sprengja snjóflóð af stað. Veðrið hélst svipað yfir daginn, snjókoma og þoka með skyggni frá 5 upp í kannski svona 100m. En ég skal sko segja ykkur það að það breyti litlu. Og snjókoman gerði það að verkum að snjórinn var ferskur allan daginn. Það var meira að segja þannig að í flestum brautunum var svona 3ocm púður til að skíða í vegna þess að ekki var búið að troða nýja snjóinn. Sjálfum mér til hrós þá gekk það eiginlega bara þrusu vel að skíða í þessu á nýju telemarkskíðunum og var ég ánægður með græjurnar. Núna er ég búinn að prófa þau í bæði svolitlu púðri og svo í hröðum pökkuðum snjó og í báðum færunum svínvirka skíðin. Ég verð bara að segja það. Þannig að þrátt fyrir að það hafi ekki verið sólskin og blíða heldur meira svona veður sem maður á að venjast á Íslandi að þá var þessi skíðaferð alveg til fyrirmyndar og vona ég að það snjói svona aftur bráðlega þannig að maður geti gert meira af þessu. Á skalanum 1 til 5 fær þessi dagur 7 og eina ástæðan fyrir ekki hærri einnkun en þetta er sú að líkamlegt form mitt er ekki til að hrópa húrra fyrir eftir veikindin, en það stendur svo sannarlega til bóta.
Já, það á sko að notfæra sér allan snjóinn sem kom núna um helgina þannig að það á að skella sér á skíði á morgun. Ferðinni er heitið til Les 7 Laux með Felix. Þá verður sko aftur stigið telemark. Þannig ég ætla að ljúka þessu hér með og fara að sofa þannig maður verði ferskur og tilbúinn í sveifluna á morgun. Eins og alltaf áður, þá lofa ég að gefa fulla skýrslu við fyrsta tækifæri þannig að hægt sé að fylgjast með framvindunni.
A+
Guðni

2 Comments:
Ohh, ég öfunda þig. Ég væri alveg til í að vera á skíðum núna. Hehehehe :D
Njóttu þess því það er enginn skíðasnjór hér þannig næsta vetur munu nýju skíðin þín sennilega ryðga uppá lofti nema farið verið út fyrir Íslandsmörk. :p
Eydís Ýr
já já skíði smíði....
;) mig langar ekkert að fara á skíði í chamerousse. alls ekki neitt bara. :/ eða þannig
svo eru allskonar tónleikar á næstunni í Grenoble. Sjá http://grandgrenoble.alpes1.com/html/concerts.php
bestu kv. Mundi
Skrifa ummæli
<< Home