Það er skrítið stundum hvernig þetta er allt saman. Ég vona núna að ég sé búinn að afgreiða veikindapakkan í bili, ég er orðinn þreyttur á þessu. Eins og mig var farið að gruna þá var ég með eyrnabólgu þannig að síðasta þriðjudag fór ég til læknis og hún greindi mig endanlega. Hún skrifaði upp á fúkalyf fyrir mig sem eru alveg að gera útaf við eyrnabólguna en þau er alveg að rugla öllu kerfinu hjá mér. Síðastu daga er ég búinn að vera í hálfgerðu lyfjamóki, ekki alveg í sambandi og það besta sem ég geri er að sofa. Það er erfitt að koma sér af stað og ég verð að segja að fyrsta skipti síðan ég kom hingað fækk ég virkilega heimþrá. Eins og Ísland er nú frábær staður þá er það frekar mikil synd að eyða tímanum mínum hérna í Frakklandi í það að sakna Íslands svo að nú er stefnan set á það að gera það sem ég kom hingað til að gera, fara á skíði.
Það er búið að snjó gríðalega í fjöllin hérna í kring upp á síðkastið. En vegna heislufarsástæðina af minni hálfu er ég nú ekki búinn að fara á skíði síðan ég fór jómfrúarferðina á nýju telemarkskíðunum. Þannig að á morgun verður farin langþráð ferð númer 2 á telemarkskíðin. Það er stemmt á fara til Les 2 Alpes sem kannski einhverjir kannast við og ég verð að segja að ég er byrjaður að iða í skininu. Ég veit að þetta kann að hljóma svoldið sérkennilega fyrir ykkur á Klakanum þar sem skíðafærið hefur ekki verið upp á marga fiska. En þar sem ég kom hingað með það sem eitt af höfuð markmiðum að skíða þá eru síðustu vikur búnar að vera þreytandi til að segja í það minnsta. En þetta stendur allt til bóta og það eru bjartir tímar framundan með nægum snjó.
Í gærkvöldi gerðist hið óhugsandi, ég Guðni Karl fór í fyrsta skipti á skaut á ævinni. Ég fór ásamt Kristu, sem er kærastan mín fyrir þá sem ekki vissu, og ég verð að segja að þetta er bæði miklu auðveldara og skemmtilegra en ég þorði að vona. Ekki skemmdi fyrir að það var diskóskautun og einhver nemendaferð í gangi. Þannig að það var fullt af fólki á mínum aldri á skautum og ég verð að segja að stemming var góð. Og aftur lenti ég í því að hitta einhvern af íslendingunum fyrir tilviljun. Ásdís var nefnilega á skautum en það en furðulegra við það að hitta hana var að ég var nýbúinn að senda henni SMS um að við þyrftum að hittast. Svona er það gaman hvernig hlutirnir eru.
Ég ætla að hætta núna og fara að undirbúa mig fyrir morgundaginn og útbúa mér kvöldmat. En lofa að gefa ýtarlega skýrslu við fyrsta tækifæri um skíðamennsku mína á morgun þannig að skíðaþyrstir vinir mínir geti fylgst aðeins með gangi mála.
Þar til síðar.
A+
Guðni

2 Comments:
Vonandi hefuru skemmt þér vel í Les2Alpes, snilldar staður. :)
Hlakka til að heyra hvernig var hjá þér. :)
Eydís Ýr
já fúlt að vera lasinn og fúlt þegar allir eru farnir. það er alveg rétt - ég prófaði þessa pakka báða tvo meðan ég var í grenoble. En það er ekkert annað að gera en að skíða og skemmta sér - menn eru bara einu sinni ungir (þó ég sé það tvisvar og er þar með undantekningin sem sannar regluna!)
bestu kveðjur suðureftir
Mundi
Skrifa ummæli
<< Home