fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Ég sit hérna með tárinn í augunum. Tíminn er svo fljótur að líða að það hálfa væri alveg mikið meira en hellingur. Ég var að kveðja Simon og Hermann, en þeir hafa búið á sama stúdentagarðinum og ég og við höfum hangið mikið saman. Þar er því tímabili lokið. Þar er aldeilis farið að týnast úr Þjóðverja hópnum sem ég hef hangið mikið með en það gerir pláss fyrir aðra. En það er nú samt súrt að segja bless við vini sína. Allavega, svona er lífið.

Það er nú ekki allt sem hefur gerst að undarförnu. Ég var rosalega kokkhraustur í síðasta bloggi mínu, með miklar yfirlýsingar um mikla skíðamennsku um síðustu helgi en það fór fyrir lítið. Mér tókst að næla mér í flesuna og til að gera hlutina ennþá betri þá var ég með hálsrýg dauðans. Ég skal sko segja ykkur það að á föstudag fyrir viku þá var ég þannig að það tók mig 5 mín að skipta um hlið í rúminu. Ég var eins og aumingi með hallandi haus og emjaði af sársauka ef ég hreyfði á mér hausinn. En með hjálp íbúfens og hitakrems tókst mér að jafna þannig að ég gæti minnsta kosti sitið uppréttur. Ekki veit ég hvað það var sem varð til þess að ég fékk þennan hálsrýg, en helvíti hvað þetta er vont. Þetta er algjör andskoti.

Þannig að minna varð úr öllum skíða hugleiðingunum mínum. En ég læt ekki deigan síga, þannig að á þriðjudaginn þegar ég var orðinn góður þá gerði ég mér lítið fyrir og lét verða að því að kaupa mér ný skíði. Það er búið að vera á stefnuskránni síðan ég kom en upp á síðkastið hafa mestar vangavelturnar farið í það að ákveða hvort ég ætti að skipta yfir í telemark. Það var það sem síðan gerði. Ég keypti mér telemark græjur og þó ég segi sjálfur frá, engar smá græjur. Fyrir þá sem vita hvað ég er að tala um þá fékk ég mér Scarpa T1 skó, Linken bindingar með upphækkun og Movement Freeheel skíði. Fyrir þá sem vita ekki hvað ég er að tala um þá eru þetta keppnis græjur. Ég ákveð eftir miklar vangaveltur að fá mér almennilegan búnað fyrst maður er að láta verða að þessu á annað borð, ég er búinn að skíða of lengi á Rossignol Viking skíðunum mínum sem eru fyrir löngu orðinn úr sér gengin. Þanngi að núna er ég vel setur skíða lega.

Og auðvita fór ég og prufaði nýju græjurnar. Og skal sko segja ykkur það að þvílíkar græjur. Ég fór til Chamrousse til að prufa og vá, ég var svo sæll. Það var sól, góður snjór og flott færi. Og nýju skíðin og ekki síður skórnir virkuðu framar vonum. Þetta var einn af þessum dögum sem allt smellur. Ég hef telemarkað áður en fram að þessu hef ég verið að grínast. Allt í einu varð ekkert mál að beygja án þess að vera við það að missa jafnvægið eða þá að maður finnist maður alltaf vera að detta framfyrir sig. Ég skal ekki fullyrði hvað það er en einhvað er það sem gerir telemarksveifluna bara miklu auðveldari með þessum græjum. Mér leið eins og telemark snillingi í lokinn, að eiginn mati að minnsta kosti, sem er nú nokkuð góðs viti. Þetta var svo frábært að ég varð að deila þessu með einhverjum þannig að ég sendi Munda SMS og stuttu síðar hringdi hann í mig. Það var virkilega gaman að heyra í honum og ég held að hann hafi verið frekar ánægður fyrir mína hönd og þykkist ég vita að hann hafi alveg verið til í að vera með mér þarna í Chamrousse. En ég verð að svekkja þig, Mundi minn, að ég fékk mér ekki rauðvín í fjallinu heldur bjór en ég fékk mér rauðvín þegar ég var kominn heim. Þetta var hreint út sagt magnað og ég hlakka mikið til að komast á skíði aftur.

Talandi um skíði þá fékk ég símhringingu úr leyninúmeri fyrir rúmri viku. Og ég var alveg út á túni í byrjun, hafði ekki hugmynd um hver þetta var. Það var töluð íslenska og allt en það var ekki fyrr en eftir svona mínútu að ég áttaði mig á því að þetta var hann Steingrímur að hringja í mig. Þvílík tíðindi sem hann flutti mér. Haldi þið bara ekki að strákurinn ætli að koma heimsækja mig yfir páskana. Já, hvorki meira né minna, ég vissi ekki alveg hvaðan á mig stóð veðrið. Ég var ekkert smá ánægður við þessi tíðindi. Þannig að núna er að skipuleggja eitthvað sniðugt fyrir okkur að gera á meðan hann er hérna, sem kemur sennilega af stórum hluta til að saman standa af skíðamennsku og djammi, þannig að þetta nú líka að vera. Ég ræð mér varla af spenningi.

Það verður sennilega lítið um skíðamennsku næstu vikuna því að ég er að fara til Frankfurt í Þýskalandi til að taka þátt í Carnevalinu sem er þar eða í bæ sem liggur þar nálægt. Ég fer saman með Kanada búum og einnri þýskri stelpu sem við erum eiginlega að fara að heimsækja. Alvega ég er nú ekki alveg með hlutina á hreinu, en við komum til með að búa heima hjá henni og síðan er stefnan set á það að djamma og skoða sig um í Þýskalandi. Það hljómar aldrei illa að komast einhvert þar sem maður getur fengið almennilegan bjór, en það gerist eiginlega ekki í Frakklandi nema að bjórinn sé innfluttur. Síðan ætla ég að nota tækifærið og heimsækja Anninu, sem býr í Bern, en henni kynntist ég þegar ég bjó í Annecy. Þannig að næsta vika er vel skipulögð af viðburðum og furðulegt nokk ekkert sem felur í sér skíði. En stundum verður maður að gera eitthvað annað. Ég tel mér að minnsta kosti trú um það.

Núna ætla ég að hætta þessu og fara að sofa. Hafið það gott og ekki gera neit sem ég mundi ekki gera.

A plus
Guðni

7 Comments:

At 24 febrúar, 2006 14:09, Anonymous Nafnlaus said...

Telemark-töffari-- til hamingju með nýju græjurnar. Er þetta ekki erfitt?

Allavegana, get ekki sagt annað en ég öfundi þig af skíðalífinu... - Kv. Gummi

 
At 25 febrúar, 2006 21:13, Anonymous Nafnlaus said...

jadúddemæ! hálsrígur... þetta hljómar eins og heilahimnubólga!!! gott að svo var ekki :)

 
At 27 febrúar, 2006 14:37, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með nýju telemark skíðin. Við Mundi öfundum þig alveg ógurlega.
Góða skemmtun í Allemagne!

Kveðja,
Svanhildur.

 
At 27 febrúar, 2006 22:20, Anonymous Nafnlaus said...

össss....

djöfull langar mig að koma og skíða með þér. mig verkjar alveg.


...farinn í íbúffeinið- virkar það ekki annars við snjóleysi?

kv. M

 
At 27 febrúar, 2006 22:21, Anonymous Nafnlaus said...

ps. erum loks komin með net hérna heima, skæpa þig við færitæki

 
At 28 febrúar, 2006 09:32, Anonymous Nafnlaus said...

Væri til í að vera í Þýskalandi núna með þér að drekka góðan bjór eða kannski bara Caperínja, eða hvernig sem maður skrifar þetta. Það er GÓÐUR drykkur... :D
Farðu vel með þig bróðir...

Eydís, Vinur og Spicehvolpafulla.

 
At 01 mars, 2006 23:21, Anonymous Nafnlaus said...

segðu okkur ferðasögu þegar þú ert klár með hana.


kveðja Mundi

 

Skrifa ummæli

<< Home