Nú ætla ég að standa við stóru orðin. Ég ætla að gera eins og ég lofaði og blogga um ferðina til Barcelona. Nú verður lagt í hann.
Við vorum 5 saman hérna frá Grenoble sem löguðum af stað saman, 3 kanada búar þar á meðal Krista og síðan þýsk stelpa. Ég var dreginn með svona á síðustu stundu hálf partinn og ég verð nú að segja að þvílík heppni. Allavega 10 tímar í rútu frá Grenoble til Barcelona á aðfaranótt föstudagsins var nú ekki alveg það ákjósanlegasta en alls ekki það versta sem ég hef lent í. Rútuferðinn gekk fínt fyrir sig nema það kannski að bílstjóraninir voru pólskir þannig að allar tilkynningar voru á frensku sem var stundum erfitt að ráða úr. En í rútuferðinni var sýnd mynd í sjónvarpinu, einhver frönsk skylmingamynd, sem er nú kannski ekki svo slæmt nema hvað að myndin var talset á pólsku. Og talsetningar á pólsku er semsagt einn maður sem les allar raddirnar einhvernveginn og einhvernveginn. Gæðin á upplestrinum voru svona eins og stafsetningar upplestur, gjörsamlega hrár og kaldur upplestur. Annars var nú bróðurparti rútuferðarinnar eytt í það að reyna að sofa. Við komum til Barcelona um 5 um morguninn á föstudeginum og á rútustöðinni tók þýsk vinkona okkar á móti okkur. Eftir stutta gönguferð komum við heim til hennar þar sem fólk lagði sig.
Við fórum ekki af stað fyrr en vel eftir hádegi á föstudeginum vegna þreyttu og rúturiðu eins og gefur að skilja. Við byrjuðum því að græja gistinguna fyrir mig og Kristu, því að ekki var pláss fyrir alla heima hjá Heike, sem er sú sem við vorum að heimsækja. Gistiheimilið var rekið af indversku fólki og angaði af reikelsi og klór. Annars góð staðsetning, í aðeins 5mín göngufæri frá Sagrada Famila sem er kirkjan sem Gaudi hannaði og er búið vera í byggingu síðan ég veit ekki hvenær og verður ekki tilbúin fyrr en rúmlega 2020. Eftir að vera búin að skrá okkur á gistiheimilið fórum við í Gaudi garðinn, sem er heitir nú eitthvað annað en ég man ekki alveg í augnablikinu. Og vá, þessi Gaudi gaur var alveg að meika það. Tilfinningin í garðinum var eins og gott Disney ævintýri. Við eyddum 3 tímum í það að sitja og slappa af og njóta þess að vera þarna. En um kvöldið fór ég og sótti Sofi, sem er vinkona mín frá Uruguay og býr í Pamplona. Ég kynntist henni í Annecy og þegar hún vissi að ég var að koma til Barcelona ferðaðist hún í 5 tíma í lest til þess að hitta mig. Síðan um kvöldið borðum við á einhverjum veitingarstað sem var eins túristalegur maður getur ímyndað sér en bjórinn var ódýr. Síðan til að koma okkur í gírinn fórum við á einhvern stað sem sérhæfir sig í því að bjóða ódýra Sangria og það í könnum. Allir í hópnum drukku vel og fjórum 1.2L könnum af Sangria síðar var ölvunarstigið orðið mjög hátt. Þá var fært sig um sett á klúbb sem spilaði rokk/teknó tónlist en það var fínt til þess að dansa. Eftir nokkra góða spretti á gólfinu var mannskapurinn orðinn lúinn en þá var klukkan líka orðin 6 þannig að tími var til að fara heim.
Á laugardagsmorgnunum var töluverð þynnka í gangi þannig að deginum var eytt í það að skoða miðbæ Barcelona. Það er nokkuð ljóst að borgin er mikil ferðamannaborg sem mér fannst stundum full mikið af því góða en af sama skapi er það rosalegur kostur, því það auðveldar manni svoldið lífið þegar maður er sjálfur ferðamaður. En borgin er frábær, það eru svo margir spennandi staðir að sjá og andrúmsloftið er hreint magnað. En það sem kom mér samt mest á óvart er hvað borgin er hrein, það var varla rusl á götunum sem er nú góður kostur. Síðan um kvöldið skoðum við gosbruns sýningu þar sem spiluð er tónlist og síðan er gosbrunnurinn látinn gera allskonar trikk og ljósum beit eftir kúnstarinnar reglum. Mér fast þetta svoldið korní en eftir 2 bjóra var þetta hin besta skemmtun. Síðan var farið á bar þar sem horft var á FC Barcelona og Real Madrid etja kappi. Leikurinn endaði 1-1 sem er frekar magnað því að Barcelona var í stór sókn allan tíman. En svona er nú víst fótboltinn. Eftir leikinn skiptum við liði og helmingurinn fór heim, en hinir, alvöru fólkið, skellti sér á næturklúbb. Klúbburinn heitir RAZZ, að ég held en nota bene að ég var fullur, og hann er á fimm hæðum þar sem spiluð er mismunanadi tónlist. Staðurinn var fín og sérstaklega neðsta hæðin þar sem spiluð er rokk tónlist og mikil stemming var á staðnum. Við enduðum með að koma heim um 5 um morguninn eftir góða takta á dansgólfinu.
Þau sem fóru heim snemma lögðu snemma af stað til þess að skoða markverða staði í Barcelona en við hin sem fórum út vorum framlá og komumst ekki af stað fyrr en um 1. Við ákváðum að fara í kláf sem gengur yfir borgina, frá ströndinni upp á hæð ofan við höfnina. Ég verð bara að segja að það er ekki þess virði. Við þurftum að bíða í 2 tíma og borga 9€ og þetta var bara ekki þess virði. Við gengum síðan upp að virki sem er efst á hæðinni þar sem gott útsýni er yfir borgina og nánast umhverfi. Síðan gengum við um Ólumpíusvæðið og ætlum að skoða eitthvað torg en þegar við komum þanngað kostaði 10€ komast inn og við sem fátækir námsmenn vorum ekki alveg að nenna því. Um kvöldið var borðaður á egyskum veitingastað og haldið heim snemma.
Á mánudeginum var síðan farið á markað sem er sá stærsti sem ég hef komið á. Rúmlega fótboltavöllur á stærð og með fisk, kjöt, grænmeti og ávexti af öllum gerðum og sortum. Við keyptum okkur nokkra ávexti og síðan var ferðinni haldið á ströndina þar sólin var aðeins sleikt. Ekki það að ég var rólegur því ég veit að ég brenn auðveldlega en sumum tókst að brenna all hressilega. Seinnipartinn var rútan síðan tekinn til Grenoble eftir vel lukkaða ferð til Barcelona.
Ég hafði aldrei komið til Spánar fyrr svo að þetta kom mér á óvart. Þetta var fullkomlega þess virði að fara þarna. Ég skal ekki segja um afganginn af Spáni en Barcelona er hreint út sagt mögnuð borg í alla staði. Hún er rosaleg ferðamannaborg sem er kostur og ókostur en hún hefur upp á svo margt að bjóða og skoða að það hálf væri meira en nóg. Þeir sem hafa þegar komið til Barcelona eru ábyggilega sammála og þið sem eigið eftir að fara þanngað krípið fyrsta tækifærið til þess að fara þanngað, það er alveg þess virði.
Ég hef nú svo sem ekki mikið annað að segja í þetta skiptið þannig að ég held að ég endi þetta hér og nú.
A+
Guðni

4 Comments:
Park Guell heitir "Gádígarðurinn" ef ég man rétt. Magnaður. Sé að þú hefur heillast af þessari mögnuðu borg eins og við gerðum á sínum tíma. (sjá: http://www.pjus.is/myndir/daia/album155 )
þakka greinargóða og skemmtilega ferðasögu.
Mundu sólkremið :)
kv. M
Gaman að lesa að það hefur verið gaman hjá þér, skil VEL að þú hefur verið svo þreyttur þegar ég talaði við þig á þriðjudaginn/mánudaginn. Man ekki alveg. :p En við heyrumst seinna.
Eydís Ýr
hæhæ
fékkstu frá mér póstinn með ferðahugmyndunum um daginn. eins reyndi ég að senda þér það nýjasta úr tónlistinni hérna á klakanum. hef ekki fengið nein viðbrögð frá þér svo ég reikna bara með að það sé hinu frábæra neti á Rabot að þakka. jæja - við erum að fara norður á morgun og ætlum að reyna að klára skíðatímabilið með stæl þar. spáin reyndar ekkert sérstök, en það er ekki eins og maður eigi ekki nóg af viðeigandi Quecha fatnaði!!! ;)
sendu línu þegar þú mátt vera að
gleðilega páska
MUNDI
ps. rakst á þetta á netinu núna í þessum töluðum. þetta er nú eitthvað fyrir þig;
http://www.verksud.is/sidur/telemark/index.html
kv.M
Skrifa ummæli
<< Home