fimmtudagur, apríl 20, 2006

Jæja, ég hef nú staðið mig vel upp á síðkasti að skrifa ekki mikið hérna á bloggið. En það á sér allt skýringar. Og meira segja aðrar skýringar heldur en það að ég hafi ekki nennt að blogga.

Nefnilega, Steingrímur kom í heimsókn yfir páskana. Þá var nú ekki gefinn sér mikill tími til þess að blogga. Við Steini stóðum okkur vel í að finna okkur alltaf eitthvað annað til dundurs. Þar á meðal fórum við tvisvar á skíði, eyddum tveimur dögum í Grenoble og fórum síðan einn dag í hörku göngutúr eftir að hafa ætlað að fara á skíði en við misstum af rútunni. Þannig að fjölbreytninn var í fyrirrúmi.

Skíðaferðirnar fórum við báðar til Les 2 Alpes þar sem það nær svo hátt upp að þar er ennþá nægur snjór. Og meira að segja annan daginn náðum við góðu 20cm púðri í brautunum sem var alveg magnað. Síðan gat maður farið eitthvað útfyrir til fá meira púður en vegna kunnáttuleysis míns á telemarkið þá gekk það svoldið verr. Veðrið var það gott að Steina tókst að verða vel rauður í andlitinu eftir daginn. Seinni skíðaferðinn var ekki eins góð vegna mikils roks og úrkomu. Það endaði með því að skíðasvæðinu var lokað að stærstum hluta, þannig að við fórum bara snemma heim þann daginn. Göngutúrinn sem við fórum var farinn upp á fjall í Vercors fjallgarðinum og tindurinn sem við gengum upp á heitir Le Moucherotte og gnæfir yfir Grenoble í vestri. Tindurinn nær upp í 1900m og gönguferðin er nokkuð notaleg. En það var svoldið mikill snjór í fjallinu ennþá þannig að ferðinn tók aðeins lengri tíma en ég hélt. Samt sem áður gekk hún það vel að við sáum fram á að geta tekið rútu kl 15 niður í staðinn fyrir 18 en til þess að gulltryggja að ná fyrri rútunni var hlaupið niður með tilheyrandi látum og lykt í rútunni. Okkur tókst líka að fara 2 út á lífið, sem verður nú að segjast að er heldur dapur hérna í Grenoble, en þrátt fyrir það tókst okkur vel til bæði skiptin. Ég meina grænt Chartreuse klikkar aldrei. Ég er alveg rosalega ánægður að Steingrímur kom hérna og heimsótti mig og ég skemmti mér hreint út sagt frábærlega.

En eftir að Steini fór tók nú við annað og alvarlegra tímabil. Ég er í prófum núna, raunar í tvöfaldri merkinu. Ég er nefnilega að taka próf í skólanum og síðan ekki síður mikilvægt þá eru foreldrar Kristu í heimsókn þannig að þar er maður í raunar mikilvægara prófi. Ég tók mig til eldaði fyrir foreldra Kristu og þar sem pabbi hennar nú matreiðslumeistari og var nokkuð ánægður með matinn þá held ég að ég sé nú nokkuð góður. Ég matreiddi snigla í forrétt, coq au vin í aðalrétt og síðan var sorbeit ís og ananas í eftirrétt. Ég held að mér sé óhætt að segja að ég hafi náð því prófi þannig að núna er ég að sökkva mér í það að læra fyrir prófin í skólanum.

Þannig núna er mér ekki til tölvuverunnar boðið lengur heldur ætla ég að fara að kíkja á skóla dótið.

Þar til næst
Guðni

3 Comments:

At 23 apríl, 2006 20:51, Anonymous Nafnlaus said...

jeeeeeee... kokka fyrir Kandadana. þú hefur nú leikið þér að því. hér var konfit soðin mývetnsk villigæs, fyllt með franskri gæsalifur á rucolabeði í kveldmatinn.... hhahaha.. já sami saurlifnaðurinn hér á bæ.


síðustu viku og þá næstu verð ég heldur meira á penslinum en ráðlagt er af manneldisráði, en svona er nú græðgin. hvenær ætlarðu svo að koma í kaffi til okkar hérna??? er mánuður í það enn???

jæja


band

 
At 23 apríl, 2006 21:55, Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert svo myndarlegur Guðni. :) Uppeldið mitt hefur greinilega skilað sér til þín. :p Hehehe..

Þín ástkæra systir,
Eydís Ýr

 
At 24 apríl, 2006 09:25, Anonymous Nafnlaus said...

Uff stressandi samt ad pabbi hennar se eitt stykki matreidslumeistari! En eg efast ekki um thu hafir stadid thig vel, thu eldar otrulega godan mat ;)

Kvedja,
Asdis

 

Skrifa ummæli

<< Home