miðvikudagur, maí 24, 2006

Jæja, eins og glöggt má sjá á þessari síðu, þá hef ég haldið mínu stryki upp á síðkastið: Ég er ekki búinn að vera duglegur að blogga. Eins og alltaf áður gæti ég komið með gommu af afsökunum fyrir því hvers vegna ég hef ekki verið duglegur að skrifa en frekar en endranær þá held ég bara að ég sleppi því að telja það upp. Í staðinn hafði ég hugsað mér að skrifa góða og greinagóða skýrslu um lífið í þessari færslu, en hérna kemur hið óvænta. Þar sem að veðrið er alveg með besta móti núna, ekki of hlýtt en heiðskírt og sól þá hreinlega nenni ekki að skrifa langa færslu núna. Auk þess ætla ég að hitta Marc André sem er vinur minn frá Kanada og við ætlum að fá okkur bjór og satt best að segja heilar það meira á þessari stundu. Þannig að þið verið að spenna beltin og setja ykkur í stellingar því að það verður aðeins lengri bið í það að þessi skýrsla komi. Auk þess er nú ekki svo langt í það að ég kem heim, aðeins 16 dagar, þannig að kemur fljótlega að þeim tímapunkti að ég get sagt ykkur alla sálarsöguna í eigin persónu sem mér finnst skemmtilegra.

Til að gera langa sögu stutta, þá verður þessi færsla ekki lengri.

Þar til næst eða þanngað til að ég sé ykkur á hinu ilfagara Íslandi, sem virðist vera í vetrar ástandi þessa dagana.
Guðni

P.s. ég tek kannski góða veðrið með mér, en einhver annar þarf þá að borga alla yfirviktina.

3 Comments:

At 27 maí, 2006 20:57, Anonymous Nafnlaus said...

þessi íslenska veðrátta er ákaflega þreytt. taktu með eins mikið og þú getur af því góða.


mér til mikilla vonbrigða komst ég að því að charteuse drykkurinn góði er ófáanlegur á íslandi - skálaðu því fyrir mér í því eitthvert af þessum síðustu kvöldum

kv. M

 
At 28 maí, 2006 20:57, Blogger vignir freyr said...

það er nú ekkert skárra hérna í danmörku.. eða jú, kannski smá, en sumarið vill láta á sér standa. kannski allt í lagi þar sem maður er jú í prófum og svona :P maður heldur þá frekar einbeitingunni :)

bið að heilsa íslandi, lítur út fyrir að ég láti ekki sjá mig á klakanum fyrr en í ágúst! :P maður verður að prófa að vera í köben einu sinni yfir sumarið..

 
At 29 maí, 2006 18:09, Anonymous Nafnlaus said...

Njóttu síðustu daganna úti vel.

Við erum farin að hlakka til að sjá þig :-)

Kv.
Svanhildur.

 

Skrifa ummæli

<< Home